Af þeim 16 þingmönnum sem ætla að róa á önnur mið í haust eru tveir ráðherrar og fjórir fyrrverandi ráðherrar.
Mynd: Birgir Þór
#stjórnmál #kosningar2016

Fjórðungur þingmanna ætlar að hætta

Einn af hverjum fjórum sitjandi þingmönnum ætlar að hætta á þingi í haust. Þar af eru tveir ráðherrar, forseti Alþingis, tveir nefndarformenn, tveir þingflokksformenn og fjórir fyrrverandi ráðherrar. Allir þingmenn hafa nú gefið út ákvörðun sína.

Sextán þing­menn af 63 ætla að róa á önnur mið eftir Alþing­is­kosn­ing­arnar 29. októ­ber næst­kom­andi. Þar af eru tveir núver­andi ráð­herr­ar, þau Ill­ugi Gunn­ars­son, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, og Sig­rún Magn­ús­dótt­ir, umhverf­is- og auð­linda­ráð­herra. Fjórir fyrr­ver­andi ráð­herrar ætla að hætta; Hanna Birna Krist­jáns­dótt­ir, fyrr­ver­andi vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og inn­an­rík­is­ráð­herra, Katrín Júl­í­us­dótt­ir, fyrr­ver­andi vara­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og fjár­mála­ráð­herra, Krist­ján L. Möll­er, þing­maður Sam­fylk­ingar og fyrr­ver­andi sam­göngu­ráð­herra, og Ögmundur Jón­as­son, þing­maður Vinstri grænna og fyrr­ver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra. 

Helm­ingur þing­manna Bjartrar fram­tíðar ætlar að hætta, þrír af sex. Tveir af níu þing­mönnum Sam­fylk­ingar hætt­ir, Píratar og VG missa einn hvor og fjórir þing­menn Fram­sókn­ar­flokks ætla að hætta. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn missir líka fjóra; þing­flokks­for­mann­inn, for­seta Alþing­is, mennta­mála­ráð­herr­ann og fyrr­ver­andi vara­for­mann­inn. Jóhanna María Sig­munds­dótt­ir, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks, er eini þing­mað­ur­inn sem á eftir að gefa út ákvörðun sína um fram­hald­ið. 

Ásmundur Friðriksson Já
Birgir Ármannsson Já
Bjarni Benediktsson Já
Brynjar Níelsson Já
Einar K. Guðfinnsson Nei
Elín Hirst Já
Guðlaugur Þór Þórðarson Já
Hanna Birna Kristjánsdóttir Nei
Haraldur Benediktsson Já
Illugi Gunnarsson Nei
Jón Gunnarsson Já
Kristján Þór Júlíusson Já
Ragnheiður Elín Árnadóttir Já
Ragnheiður Ríkharðsdóttir Nei
Sigríður Á. Andersen Já
Unnur Brá Konráðsdóttir Já
Valgerður Gunnarsdóttir Já
Vilhjálmur Árnason Já
Vilhjálmur Bjarnason Já
Ásmundur Einar Daðason Já
Elsa Lára Arnardóttir Já
Eygló Harðardóttir Já
Frosti Sigurjónsson Nei
Gunnar Bragi Sveinsson Já
Haraldur Einarsson Nei
Höskuldur Þórhallsson Já
Jóhanna María Sigmundsdóttir Vill ekki svara
Karl Garðarsson Já
Líkeik Anna Sævarsdóttir Já
Páll Jóhann Pálsson Nei
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Já
Sigrún Magnúsdóttir Nei
Sigurður Ingi Jóhannsson Já
Silja Dögg Gunnarsdóttir Já
Vigdís Hauksdóttir Nei
Willum Þór Þórsson Já
Þorsteinn Sæmundsson Já
Þórunn Egilsdóttir Já
Ásta Guðrún Helgadóttir Já
Birgitta Jónsdóttir Já
Helgi Hrafn Gunnarsson Nei
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir Já
Katrín Jakobsdóttir Já
Lilja Rafney Magnúsdóttir Já
Steingrímur J. Sigfússon Já
Steinunn Þóra Árnadóttir Já
Svandís Svavarsdóttir Já
Ögmundur Jónasson Nei
Árni Páll Árnason Já
Helgi Hjörvar Já
Katrín Júlíusdóttir Nei
Kristján L. Möller Nei
Oddný G. Harðardóttir Já
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir Já
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir Já
Valgerður Bjarnadóttir Já
Össur Skarphéðinsson Já
Björt Ólafsdóttir Já
Brynhildur Pétursdóttir Nei
Guðmundur Steingrímsson Nei
Óttarr Proppé Já
Páll Valur Björnsson Já
Róbert Marshall Nei

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Efnisflokkar:
Meira eftir höfundinnSunna Valgerðardóttir
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar