Gestir þáttarins búa yfir reynslu sem er framandi fyrir okkur flest. Sam Axel kom nefnilega út sem trans strákur og er byrjaður að lifa lífinu í sínu rétta kyni. Hann hefur fullan stuðning fjölskyldu sinnar, og það merkilega er að eina mótlætið sem þau hafa mætt var í viðtali hjá barnageðlækninum. Sam Axel og Sólveig segja okkur sögu sína, spjalla um ferlið og hvað er rétt að gera þegar barn eða unglingur kemur út sem trans.





